Listen on:
Episodes
Latest Episodes
View all
Sep 27, 2026
Sep 27, 2026
41 min
Ævigöngu Jóhönnu á Hrauni – Hrauns-Jóku – er fylgt áfram, afdrif fjölskyldunnar eru rakin, dapurleg uppákoma við Hrútafjarðará kemur við sögu og örlagarík veiðiferð á Hraunsvatni. Þá er flett ofan af dularfullum höfundi bændarímu í Mosfellssveit. Hvað er meinlæti og hvað er bróðurlóð og hver er munur á að vera bústýra og husholdiska? Hver er þessi 'beau' sem Jóhanna verður skotin í. En umfram allt: hvernig má það vera að vinnukonukind hefji búskap á eigin jarðarparti og hvernig verður Jóhanna svo að Hrauns-Jóku? Harmur, erfðamál, rómans og spenna; allt þetta og meira til í einum hlaðvarpsþætti!
Bjarni Guðmarsson tók saman, lesari með honum Jóhanna Pálsdóttir.
Tónlist eftir / music by © Crowander (David Szesztay), crowander.com.

Jul 6, 2026
Jul 6, 2026
43 min
Fyrsti þáttur í röð um Hrauns-Jóku. Hér segir frá heimahögum Jóhönnu í Öxnadal, þjóðskáldinu á Bægisá og fæðingu söguhetjunnar.
Bjarni Guðmarsson tók saman, lesari með honum Jóhanna Pálsdóttir.
Tónlist eftir / music by © Crowander (David Szesztay), crowander.com.

Jul 17, 2025
Jul 17, 2025
1 hr 23 min
Það er komið að sögulokum. Í þessum lokaþætti heyrum við af því hvernig fjölskyldunni í Bifröst vegnar gegnum heila heimsstyrjöld og margs konar óvæntar uppákomur.
Tónlist eftir / Theme music by Crowander (https://www.crowander.com/)

Dec 14, 2024
Dec 14, 2024
53 min
Saga Frímanns Jónssonar og fjölskyldu hans er rakin áfram, nú berst leikurinn til Reyðarfjarðar þar sem komið hefur verið upp merkilegri rafstöð og Frímann hlýtur stöðu rafstöðvarstjóra – við misjafnar undirtektir. Fjölskyldan dafnar og enn bætist barn í hópinn.
Tónlist eftir / Theme music by Crowander (https://www.crowander.com/)

Jun 30, 2024
Jun 30, 2024
1 hr 2 min
Furður tímans hellast yfir, gúmmístígvél á fætur og blikkbeljur leysa reiðhesta af hólmi. Bóndasonurinn á Bessastöðum eignast kærustu og stofnar fjölskyldu. Og finnur fjölina sína í nýjasta undri tímans. Brátt kviknar ljós í Fljótsdal.
Lesari Jóhanna Pálsdóttir.
Tónlist / Theme music by Crowander (https//www.crowander.com)

Apr 14, 2024
Apr 14, 2024
57 min
Um aldamótin fá landsmenn telegraf og telefón á heilann. Anna er ekki lengur Anna á Skriðuklaustri heldur Anna á Bessastöðum, þangað flytja þau Jón með börnum sínum og brátt drífur að fólk. Jón er kampakátur enda gengur búskapurinn vel en málið vandast þegar frumburðurinn Frímann tekur í sig að ganga menntaveg. Á Eiðum bíða ævintýrin, skólafélagar læra að nota vatnskrana og gera efnafræðitilraunir með karbít og hlandkopp. Þetta og margt fleira í þriðja þætti sögunnar.

